Fjölskyldudagatal
Fjölskyldudagatal sem les tölvupóstana frá skólanum og tómstundunum og breytir þeim í skýra yfirsýn. Knúið af AI.
Vandamálið
Upplýsingar fjölskyldunnar eru dreifðar yfir tugi tölvupósta, skilaboða og forrita. Enginn hefur heildarmyndina og álagið af utanumhaldinu fellur ójafnt á fólk.
Innsýnin
Upplýsingarnar eru þegar til, þær eru bara fastar í sundurslitnum tölvupóstum og skilaboðum. AI getur dregið þær saman og gert þær nothæfar.
Lausnin
AI-knúið fjölskyldudagatal sem les innkomna tölvupósta, býr sjálfkrafa til viðburði og verkefni, og inniheldur stigakerfi fyrir börnin.
Meira samhengi
Allar fjölskyldur glíma við sama hlutinn: tölvupóstar frá skólanum, skilaboð frá íþróttafélagi, dagskrár dreifðar yfir pósthólf og hópspjall. Enginn hefur heildarmyndina og álagið af utanumhaldinu fellur ójafnt. Ég er að smíða fjölskyldudagatal sem tekur þessa tölvupósta, les þá með AI og býr sjálfkrafa til viðburði og verkefni úr innihaldinu. Inni í þessu er líka verkefnalisti fyrir krakkana þar sem þau safna stigum. Ég er þegar farinn að nota þetta heima hjá mér og er að kanna hvernig þetta gæti nýst fleiri fjölskyldum.
Ertu með einhverjar hugmyndir um þetta?
Mig langar alltaf að heyra frá fólki sem þekkir þetta, hvort sem þú hefur sjálf/ur upplifað það, átt hugmyndir eða vilt bara spjalla um það.
Hafa samband