Af hverju Gott vibe?
Já, ég veit, nafnið er smá aulalegt.
En það nær samt ótrúlega vel yfir það sem ég er að gera.
Það er líka ákveðið veðmál fólgið í því.
Í dag er ennþá horft svolítið hornauga á vibe coding. Ég skil það alveg. Það er nóg til af dóti sem hefur verið hent saman hratt, illa hugsað og kallað lausn.
En ég er að veðja á að það breytist.
Ekki af því að orðið sé eitthvað sérstaklega töff, heldur af því að aðferðin gerir litlum aðilum kleift að hreyfast miklu hraðar. Komast fyrr frá hugmynd yfir í eitthvað sem hægt er að prófa. Sjá hvað virkar. Laga það sem hikstar. Og byggja áfram.
En hraði má ekki þýða kæruleysi.
Ég vil ekki henda einhverju saman og vona það besta. Ég vil nota tæknina til að búa til eitthvað sem er gott, öruggt og raunverulega hjálplegt. Eitthvað sem venjulegt fólk skilur, treystir og nennir að nota.
Gott vibe er regnhlíf yfir ýmislegt sem ég er að fikta í, byggja og prófa. Góðar vibe-kóðaðar lausnir. Gott vibe í Fimmunni. Og almenn gleði í kringum skemmtilegar hugmyndir, eins og 25 fm uppblásinn golfhermi / veislutjald.
Þetta er ekki allt sami hluturinn, en þetta á allt að skila svipaðri tilfinningu.
- Að hlutirnir verði miklu einfaldari og hjálpi fólki í alvörunni.
- Að stemningin verði aðeins betri.
- Að fólk labbi frá þessu og hugsi: þetta var næs.
Vont vibe er frá öllum sjónarhornum frekar glatað.
En það gerir Gott vibe bara enn betra.